24.07.26 - 09:50
Kári Snorrason
Lacroix á leið til Chelsea

Kom inn á fyrir meiddan Saliba í undanúrslitaleik Frakklands og Spánar.

Mynd: EPA

Chelsea hefur náð samkomulagi við Crystal Palace um kaup á franska varnarmanninum Maxence Lacroix. Talið er að verðmiðinn á honum sé um 55 milljónir punda.
Búist er við því að sá franski gangist undir læknisskoðun næstkomandi sólarhring og skrifi undir sex ára samning við félagið.

Þessi 26 ára hafsent spilaði þrjá leiki með Frakklandi á nýloknu heimsmeistaramóti.
Lacroix hefur verið lykilmaður í liði Palace undanfarin tvö ár en hann vann Sambandsdeildina á liðnu tímabili og enska bikarinn með liðinu tímabilið þar áður.
Hann var keyptur til Palace frá þýska félaginu Wolfsburg fyrir tveimur árum á rúmar 15 milljónir punda.