Fotbolti.net
24.07.26 - 14:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ingimar Arnar seldur til Danmerkur

Á leið til Danmerkur.

Á leið til Danmerkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingimar Arnar Kristjánsson er samkvæmt heimildum Akureyri.net á leið frá Þór til danska félagsins Århus Fremad sem leikur í næst efstu deild þar í landi.

Í frétt Akureyri.net segir að Ingimar haldi utan í dag, fari í læknisskoðun á mánudag og muni skrifa undir þriggja ára samning ef ekkert óvænt kemur upp.

Ingimar er uppalinn Þórsari, framherji, sem er fæddur árið 2005. Hann hefur skorað þrjú mörk í Bestu deildinni í sumar. Hann skoraði gegn Val og KR í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins og skoraði svo gegn Val í lok síðasta mánaðar. Með því tvöfaldaði hann heildarmarkafjölda sinn í deildarleikjum á ferlinum.
Hin hliðin - Ingimar Kristjánsson (Þór)
TENGT EFNI

Hin hliðin - Ingimar Kristjánsson (Þór)

Hann glímir við meiðsli á öxl um þessar mundir en búist er við því að hann verði klár í slaginn í næsta mánuði.

Hjá Århus Fremad hittir Ingimar fyrir jafnaldra sinn, Ólaf Dan Hjaltason.

Heimild: Akureyri.net

Hér er Ingimar að skora gegn Val.

Hér er Ingimar að skora gegn Val.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.