24.07.26 - 15:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þór fær leikmann frá Kerala Blasters (Staðfest)

Mynd: Þór

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Þór
Spænski sóknarmaðurinn Victor Bertomeu er genginn í raðir Þórs og mun spila með liðinu út tímabilið.
Bertomeu er 33 ára og spilaði síðast með Kerala Blasters á Indlandi. Hann hefur farið víða á sínum ferli og frá árinu 2021 hefur hann spilað á Spáni, í Hong Kong, Indónesíu, á Ítalíu og Indlandi.
Guðjón Baldvinsson lék með Kerala Blasters á láni frá Stjörnunni fyrri hluta árs 2018 þegar Hermann Hreiðarsson var aðstoðarþjálfari liðsins. Þeir Wes Brown og Dimitar Berbatov voru þá leikmenn liðsins.
Bertomeu skoraði fjögur mörk í tíu leikjum í indversku ofurdeildinni fyrri hluta árs. Hann varð bikarmeistari með liði Eastern í Hong Kong á þarsíðasta tímabili.

TENGT EFNI
Ingimar Arnar seldur til Danmerkur
Bertomeu er fjórði leikmaðurinn sem Þór fær í glugganum því þeir Aron Einar Gunnarsson og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson komu inn fyrir síðasta leik gegn Víkingi og Þorri Ingólfsson var tilkynntur sem nýr leikmaður Þórs í gær og kemur hann á láni frá Víkingi út tímabilið.
Þór situr í 12. sæti Bestu deildarinnar og næsti leikur liðsins er nágrannaslagur gegn KA á Greifavellinum á mánudagskvöld.