24.07.26 - 13:33
Elvar Geir Magnússon
„Hver einasti stjóri vill hafa Rodri“

Rodri var valinn besti leikmaður HM en hann varð heimsmeistari með Spánverjum.

Mynd: EPA

Enzo Maresca.

Framtíð Rodri hjá Manchester City er í óvissu, samningur hans rennur út í júní á næsta ári. Fjölmiðlar halda því fram að hann vilji ganga í raðir Real Madrid en spænska félagið hefur mikinn áhuga á að fá hann.
Enzo Maresca, stjóri City, segist þó ekki hafa neinar áhyggjur.

TENGT EFNI
Rodri gæti þurft að gangast undir aðgerð
„Fyrst af öllu þá eru alltaf vangaveltur í kringum stærstu leikmennina, svo ég hef ekki áhyggjur af umræðunni. Mér finnst þetta eðlilegt því þeir unni HM og líka því hann er einn besti leikmaðurinn," segir Maresca.
„Ég held að hver einasti stjóri vilji hafa Rodri því hann er leikmaður í fremstu röð. En hann er að fara í aðgerð á mánudag, hann þarf að taka sér frí, hann þarf að hvílast og ná sér og svo kemur hann aftur til okkar."
Rodri mun missa af byrjun nýs tímabils hjá City vegna bakmeiðsla. Hann hefur glímt við mikil meiðslavandræði síðan hann sleit krossbönd í 2-2 jafntefli gegn Arsenal í september 2024. Hann var frá út það tímabil og meiddist svo aftur á HM félagsliða í júlí 2025. Meiðsli aftan í læri og nárameiðsli voru að hrjá hann á síðasta tímabili og hann byrjaði aðeins 17 úrvalsdeildarleiki.