Fotbolti.net
Til Húsavíkur eftir að hafa lært af einum áhrifamesta þjálfara heims

24.07.26

Til Húsavíkur eftir að hafa lært af einum áhrifamesta þjálfara heims

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Það vakti athygli þegar Völsungur réð hinn 33 ára gamla Borja Martín Iglesias sem nýjan aðalþjálfara fyrr í sumar. Hann er ungur spænskur þjálfari sem ákvað að taka stökkið frá hitanum á Spáni yfir til Húsavíkur.

Völsungur fékk þarna inn þjálfara sem hefur byggt upp áhugaverða hugmyndafræði sem hann telur geta skipt sköpum, jafnvel í fallbaráttu í Lengjudeildinni.

Í samtali við Fótbolta.net fer Borja ítarlega yfir þá hugmyndafræði sem hann vill innleiða hjá Völsungi, af hverju hann telur íslenska leikmenn hafa einstaka kosti og hvernig heimsóknir til þjálfara á borð við Marcelo Bielsa hafa mótað sig sem þjálfara.
Leiðin til Húsavíkur
Þegar Völsungur rak belgíska ævintýramanninn Patrick De Wilde áður en tímabilið hófst þurfti félagið að bregðast hratt við. Leitinni lauk hjá ungum Spánverja sem er með stórar hugmyndir um fótbolta.

Hinn 33 ára gamli Borja Martín Iglesias flutti til Húsavíkur eftir að hafa starfað innan spænska fótboltakerfisins um árabil, en hann byrjaði ungur að þjálfa og móta hugmyndir sínar. Hann hafði síðast verið hluti af þjálfarateymi yngri flokka Eibar, starfað hjá Osasuna og safnað að sér reynslu sem UEFA Pro-þjálfari. Þá hafði hann einnig nýtt tækifæri til að fylgjast náið með störfum þjálfara á borð við Marcelo Bielsa, Julen Lopetegui og Jagoba Arrasate sem allir hafa náð miklum árangri.

Leið hans til Húsavíkur lá þó í gegnum landa sinn Sergio Parla.

Parla hafði verið einn mikilvægasti leikmaður Völsungs þegar félagið vann sér sæti í Lengjudeildinni og hélt því sæti á síðasta tímabili. Fyrir tímabilið í ár ákvað hann hins vegar að leggja skóna á hilluna en hann hefur núna tekið við starfi aðstoðarþjálfara. Hann hafði lengi talað um Borja við stjórnarmenn félagsins og þegar þjálfarastaðan losnaði varð Spánverjinn fyrir valinu.
Í dag er verkefnið skýrt. Völsungur er í harðri fallbaráttu og þarf að snúa genginu við. Borja er þó ekki að koma til Íslands með einhverjar skyndilausnir.

„Ferill minn hefur mótast af spænskri fótboltamenningu. Ég byrjaði sem leikmaður hjá Real Sociedad og á síðustu sextán árum sem þjálfari hef ég verið nánast áráttukenndur yfir því að þróa mína eigin aðferðafræði," segir Borja við Fótbolta.net.

„Ég kom til Íslands vegna þess að ég tel íslenska leikmenn búa yfir eiginleikum sem eru einstakir. Þeir hafa ótrúlegan karakter, mikinn líkamlegan styrk, seiglu og vinnusemi. Mitt hlutverk er að tengja þessa eiginleika við þá taktísku þekkingu sem ég hef tileinkað mér í spænskum fótbolta."

„Ég vinn eftir aðferðafræði sem byggir á fjórum grunnstoðum; skynjun, staðsetningu, boltameðferð og pressu. Ég er mjög ákveðinn í því að skapa lið með skýra sjálfsmynd. Ég vil ekki að mín lið aðlagi sig að andstæðingnum. Ég vil að við stjórnum leiknum og neyðum andstæðinginn til að laga sig að okkur. Markmiðið er að fólk þekki liðið okkar á fyrstu fimm mínútunum," segir spænski þjálfarinn jafnframt.
Til Húsavíkur eftir að hafa lært af einum áhrifamesta þjálfara heims

Mynd: Völsungur

Lærði af Bielsa, Lopetegui og Arrasate
Borja segir að þrír þjálfarar hafi haft mest áhrif á sig, þjálfarar sem hann hafi fengið tækifæri til að læra af á síðustu árum.

„Marcelo Bielsa kenndi mér mikilvægi pressunnar og hversu mikilvægt það er að vinna boltann aftur eins fljótt og hægt er."

„Julen Lopetegui mótaði mína hugsun um boltameðferð. Hann kenndi mér hvernig hægt er að stjórna andstæðingnum með þolinmæði og skapa sendingarleiðir með réttum hreyfingum."

„Frá Jagoba Arrasate lærði ég svo hvernig skipulag varnarleiks og umbreytingar milli sóknar og varnar verða að vera fullkomlega samstilltar."
„Ég hef sameinað þessa hluti í mína eigin hugmyndafræði. Það sem skiptir mig mestu máli er að sjálfsmynd liðsins breytist aldrei. Úrslit geta sveiflast en leikstíllinn má ekki gera það."

Vil að leikmennirnir hugsi hraðar en andstæðingurinn
Borja notar hugtakið 4 Ps ítrekað þegar hann talar um fótbolta. Það stendur fyrir skynjun (e. perception), staðsetningu (e. position), boltameðferð (e. possession) og pressu (e. pressure). Að hans sögn byggist öll hugmyndafræði hans á þessum fjórum stoðum.

„Í mínum huga vinnst fótbolti á hæsta stigi í smáatriðunum. Það skiptir litlu máli hversu gott leikkerfið er á blaði ef leikmennirnir ná ekki að framkvæma það sem þarf inni á vellinum."

„Allt byrjar á skynjuninni. Leikmenn verða stöðugt að vera að skoða umhverfi sitt áður en þeir fá boltann. Þeir þurfa að vita hvað er að gerast í kringum þá áður en fyrsta snertingin kemur. Þannig geta þeir stillt líkamanum rétt upp og tekið boltann þannig að næsta snerting flýti leiknum."
Til Húsavíkur eftir að hafa lært af einum áhrifamesta þjálfara heims

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Þetta eru örsmá atriði en þau geta sparað sekúndubrot sem skipta öllu máli þegar leikurinn er spilaður á miklum hraða,“ segir Borja.

Hann segir að þessi hugsun sé hluti af því sem kallað er stöðuleikur (e. positional play eða juego de posición), þar sem markmiðið er ekki aðeins að halda boltanum heldur stjórna rýmum, hreyfingum og tímasetningum þannig að andstæðingurinn neyðist til að bregðast við.

„Við viljum ekki halda boltanum bara til þess að halda honum. Við viljum brjóta línur andstæðingsins. Þegar hann kemur í pressu opnast ný svæði á vellinum og þá þurfum við að finna þau strax."

„Við vinnum mikið með svokallaðan þriðja mann (e. third man combination). Ef beina sendingarleiðin lokast þarf alltaf að vera annar leikmaður sem opnar nýja leið áfram. Þess vegna þurfa leikmennirnir að ferðast saman með boltanum. Sendingarnar eiga að vera stuttar, hraðar og nákvæmar. Með því drögum við andstæðinginn úr skipulagi sínu og búum til ný rými sem við getum nýtt okkur, annað hvort með því að taka á móti boltanum fyrir aftan pressuna eða sækja hratt fram á við,“ segir hann.
Leikmenn mega ekki hugsa bara um sína stöðu
Borja segir að einn stærsti munurinn á nútímafótbolta og leiknum eins og hann var áður sé hvernig leikmenn skilji hlutverk sín.

„Við viljum alltaf hafa leikmenn á mismunandi stöðum á vellinum. Það gefur okkur jafnvægi í uppspilinu og fleiri möguleika þegar við sækjum."

„Það eru ákveðin svæði á vellinum sem verða alltaf að vera mönnuð. Þegar öllu er á botninn hvolft snýst fótbolti um rými, tíma og tækifæri,“ segir hann.

Borja segir að leikmenn megi ekki hugsa of þröngt um eigin stöðu.
Marcelo Bielsa kenndi mér mikilvægi pressunnar.
EPA
Marcelo Bielsa kenndi mér mikilvægi pressunnar.
„Ég vil að leikmenn hugsi fyrst og fremst eins og fótboltamenn en ekki bara sem bakverðir, miðverðir eða framherjar. Ég hef ekki áhyggjur af því hver kemur inn á ákveðið svæði. Það sem skiptir máli er að einhver geri það, á réttum tíma og með réttri hreyfingu."

„Hver einasta hreyfing hefur tilgang. Oft er leikmaður ekki að hlaupa til að fá boltann heldur til að draga varnarmann með sér og opna pláss fyrir liðsfélaga. Það er þessi samvinna sem skapar yfirburði í sóknarleiknum,“ segir hann.

Borja segir að markmiðið sé að skapa tölulega yfirburði (e. numerical superiority), staðsetningarlega yfirburði (e. positional superiority) og einstaklingsbundna yfirburði (e. qualitative superiority). Að hans mati verður boltameðferð þannig aðeins verkfæri en aldrei markmið í sjálfu sér.

„Við eigum ekki að halda boltanum bara til að halda honum. Við eigum að nota hann til að færa andstæðinginn úr jafnvægi og skapa okkur yfirburði. Þegar boltinn tapast hjálpar sama uppbygging okkur svo að vinna hann strax aftur. Leikmennirnir eru þegar komnir í réttar stöður til að hefja pressuna."
„Þess vegna eru þessar fjórar stoðir alltaf tengdar saman. Skynjun, staðsetning, boltameðferð og pressa eru allt hluti af sömu hugmyndafræðinni.“

Varnarleikurinn byrjar áður en boltinn tapast
Borja telur að einn stærsti misskilningurinn þegar kemur að fótbolta sé hvernig fólk horfi á varnarleik.

„Margir halda að varnarskipulagið byrji þegar boltinn tapast. Ég lít allt öðruvísi á það."

„Hvernig þú sækir ákveður hvernig þú getur varist.“
Lopetegui breytti því hvernig ég hugsa um boltameðferð.
EPA
Lopetegui breytti því hvernig ég hugsa um boltameðferð.
Að hans mati er góð sóknarfærsla jafnframt grunnurinn að góðum varnarleik.

„Ef liðið er rétt staðsett í sóknarleiknum eru leikmennirnir sjálfkrafa í betri stöðu til að vinna boltann aftur um leið og hann tapast. Við viljum ferðast saman með boltanum þannig að vegalengdirnar milli leikmanna verði stuttar. Það hjálpar okkur bæði í uppspilinu og gerir okkur kleift að bregðast samstundis við þegar við missum boltann.“

Borja segir að þar séu áhrif Marcelo Bielsa hvað skýrust.

„Við viljum vinna boltann aftur á fyrstu sekúndunum eftir að hann tapast (e. 5-second counter-pressing). Til þess þarf ekki bara mikinn dugnað heldur fullkomna samhæfingu. Leikmenn verða að skilja pressuhlaupin sín og vita hvenær á að stökkva út úr línunni til að loka sendingarleiðum."
„Ef fyrsta pressan tekst ekki verður liðið samt að vera tilbúið í næsta skref. Varnarleikur snýst ekki um að hlaupa meira en andstæðingurinn heldur um að hugsa hraðar en hann. Rétt líkamsstaða, góð staðsetning og skýr ákvörðunartaka skipta þar mun meira máli en bara dugnaður.“

Íslenskir leikmenn hafa eitthvað sem ekki er hægt að kenna
Borja er mjög spenntur fyrir því að vinna með íslenskum leikmönnum og deila hugmyndafræði sinni með þeim.

„Ég kom til Íslands vegna þess að ég tel íslenska leikmenn búa yfir eiginleikum sem eru á heimsmælikvarða. Þeir eru líkamlega sterkir, seigir og hafa einstakan vinnumóral. Það sem hefur líka heillað mig er karakterinn. Hér eru leikmenn sem gefast ekki upp og halda alltaf áfram, sama hvernig staðan er. Ég ber mikla virðingu fyrir því," segir Borja.

Að hans mati er verkefni þjálfarans ekki að taka þessa eiginleika í burtu heldur byggja ofan á þá.
Til Húsavíkur eftir að hafa lært af einum áhrifamesta þjálfara heims

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Ég vil aldrei fjarlægja þetta íslenska DNA. Hlutverk mitt er að styrkja það með aðferðafræðinni sem ég vinn eftir. Íslenskur fótbolti hefur baráttuna og kraftinn. Við viljum bæta við taktískum verkfærum; kenna leikmönnum að skanna umhverfið áður en þeir fá boltann, skilja betur staðsetningar á vellinum, stjórna leiknum með skynsamlegri boltameðferð og pressa saman sem ein heild."

„Ef okkur tekst að sameina íslenska hjartað og taktíska hugsun tel ég að við getum byggt upp mjög öflugt lið."


Borja segir að afsakanir eigi ekki heima í þeirri vinnu.

„Það skiptir mig engu máli hvort við spilum í sól á Spáni eða í vindinum á Húsavík. Völlurinn er alltaf jafn stór og boltinn hagar sér á sama hátt. Veðrið, ferðalög eða aðstaðan mega aldrei verða afsökun. Góð aðferðafræði á að virka við allar aðstæður," segir þjálfarinn.
Vill skilja eitthvað eftir sig á Húsavík
Þegar Borja er spurður út í lífið á Húsavík segir hann að breytingin frá Spáni hafi verið mikil, en á jákvæðan hátt.

„Hér fæ ég næði til að einbeita mér að því sem skiptir mestu máli; þjálfuninni og leikmönnunum," segir Borja.

„Í afreksíþróttum skiptir innri menning miklu meira máli en umhverfið. Lífsstíllinn hér passar vel við þann aga og þá einbeitingu sem ég geri kröfur um í daglegu starfi."

Hann segir jafnframt að markmið sitt sé ekki aðeins að hjálpa Völsungi til skemmri tíma.
Til Húsavíkur eftir að hafa lært af einum áhrifamesta þjálfara heims

Mynd: Úr einkasafni

„Ég vil skilja eitthvað eftir mig. Ég vil hjálpa leikmönnum að þróast, hækka standardinn hjá félaginu og byggja upp leikstíl sem fólk tengir við Völsung. Í deild eins og þessari þarf þjálfari ekki bara að ná úrslitum heldur líka þróa leikmenn. Ef félagið getur bæði náð árangri inni á vellinum og aukið verðmæti leikmannahópsins er það sigur fyrir alla."

Áhrifin frá Bielsa
Borja fékk á sínum tíma tækifæri til að fylgjast náið með Marcelo Bielsa, einum áhrifamesta þjálfara sögunnar. Pep Guardiola talaði um Bielsa á sínum tíma sem besta þjálfara heims og ráðfærði sig mikið við hann. Borja segir það hafa mótað sig verulega að hafa fengið tækifæri til að fylgjast með Bielsa.

„Það sem heillaði mig mest við Bielsa var ekki endilega leikkerfið heldur aginn í öllu sem hann gerði. Hann hugsar fótboltann niður í minnstu smáatriði og hver einasta æfing hefur skýran tilgang."

„Það sem ég lærði mest af honum var hvernig hægt er að gera ákveðnar hreyfingar og ákvarðanatöku að eðlislægum viðbrögðum hjá leikmönnum. Hann lagði líka gríðarlega áherslu á að vinna boltann aftur á fyrstu sekúndunum eftir að hann tapast (e. 5-second counter-pressing),“ segir Borja.
Bielsa er þó aðeins einn af þeim þjálfurum sem hafa mótað hugmyndafræði Spánverjans. Hann nefnir líka Julen Lopetegui og Jagoba Arrasate.

„Svo hef ég reynt að sameina það við það sem ég lærði af Julen Lopetegui um yfirvegaða boltameðferð og því sem Jagoba Arrasate kenndi mér um skipulag varnarleiks og umbreytingarnar á milli sóknar og varnar."

Borja segir að úr þessari blöndu hafi orðið sú hugmyndafræði sem hann vinnur eftir í dag.

„Ég reyndi ekki að afrita neinn þeirra. Ég tók það besta frá hverjum og einum og mótaði mína eigin nálgun. Úr því varð það sem ég kalla 4 Ps; skynjun (Perception), staðsetningu (Position), boltameðferð (Possession) og pressu (Pressure). Þetta eru grunnstoðirnar sem öll mín lið byggja á.“
Við viljum vera þekktir fyrir hvernig við spilum
Þrátt fyrir að Völsungur sé í krefjandi stöðu í Lengjudeildinni segir Borja að langtímahugsunin megi ekki gleymast.

„Þegar ég kom hingað var staðan erfið. Fyrsta verkefnið var að ná stöðugleika og það tókst ágætlega um tíma. En það sem skiptir mig mestu máli er að sjálfsmynd liðsins haldist. Það koma leikir sem tapast og það koma leikir þar sem hlutirnir ganga ekki fullkomlega upp. Sjálfsmyndin má hins vegar aldrei hverfa," segir Borja og bætir við:

„Ég vil að þegar fólk horfir á Völsung geti það strax séð hvernig liðið vill spila," sagði Spánverjinn að lokum. Hvort hugmyndafræði hans skili Völsungi upp töfluna á eftir að koma í ljós en hann ætlar að skilja eftir sig skýrt handbragð.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.