Spiluðu síðasta korterið með 10 menn - „Kannski aðeins of fljótur að nýta mína síðustu skiptingu"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net ræddi við Sigurvin Ólafsson, þjálfara Þróttar, eftir 1-5 útisigur á Leikni í dag í 15. umferð Lengjudeildarinnar.
„Mjög ánægður að ná í þrjú stig, höfum oft átt erfitt með að hala inn þremur stigum á Leiknisvelli það var kærkomið að ná því í dag."
Síðustu þrjár viðureignir Leiknis og Þróttar fóru 1-1, er fínt að skora extra 4 mörk í dag?
„Já já, þetta þróaðist mjög svipað, í fyrra komumst við líka mjög snemma yfir. Svo jafnaðist leikurinn og við pínu hleyptum þeim inn. Nú var markmiðið að hleypa þeim ekki inn, þó að það hafi ekki mikið meira gerst í fyrri hálfleik, annað en við skorum tvö núll, þá fengu þeir hálf eða jafnvel dauðafæri."
„Sama með seinni hálfleik við byrjum hann mjög kröftulega, svo var mjög mikilvægt að hleypa þeim aldrei inn í leikinn."
Næst fær Þróttur Aftureldingu í heimsókn, hvernig leik er Venni að búast við?
„Mjög jöfnum, spennanndi og erfiðum leik auðvitað. Það var algjört stríð þegar við mættum þeim í Mosfellsbæ í fyrri umferðinni, dramatískum leik sem við töpuðum. Það bara hlakkar í okkur að rétta það af og leiðrétta þau úrslit með góðum sigri."
Unnar Steinn Ingvarsson þurfti að fara meiddur af velli stuttlega þegar hann var búin að koma inn á og eftir stoðsendingu.
„Þetta lítur allavega ekki vel út, eins og þú sagðir þá var hann búinn að vera inn á í kannski 10 mínútur. Eftir að hafa tekið þreföld skæri og lagði upp mark, þá gerði hann kannski einum skærum of mikið, ég veit það ekki. Það virðist vera að hann meiddist á fæti og hann gat ekki haldið áfram, ég þarf að komast að því hversu alvarlegt það er."
Þróttur þurfti að spila í 15 mínútur með 10 manns vegna meiðsla Unnars, Venni var búin að nota allar skiptingarnar.
„Það er ekki betra að vera einum færri, en það setti rosalegan fókus í liðið. Það er oft erfitt að halda fókus þegar þú ert komin fimm núll og korter eftir. Það var frábært að sjá strákana endurskipuleggja sig og verjast af krafti og skapa færi á móti."
„Ef einhver klúðraði þetta varðar þá var ég kannski aðeins of fljótur að nýta mína síðustu skiptingu."




