Fotbolti.net
23.07.26 - 22:33
Hafþór Örn Laursen

Chris Brazell: Það sem ég myndi búast við í hverri viku frá Val

Auglýsing
Chris Brazell, þjálfari Vals

Chris Brazell, þjálfari Vals

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur vann 1-0 sigur í fyrri leik í einvígi þeirra gegn Zrinjski Mostar í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Chris Brazell, þjálfari Vals, var fenginn í viðtal eftir sigurinn.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 0 Zrinjski Mostar
„Í ljósi einvígisins eru þetta mjög góð úrslit og gefur okkur forskot í næsta leik en við vitum klárlega að við erum að keppa á móti mjög sterkum andstæðingi. Þetta er alls ekki búið, þetta er bara smá forskot.''

„Heilt yfir er ég mjög sáttur og á kvöldi eins og þessu, sólskin í Evrópuleik, og að spila eins og við gerðum gegn frábæru liði sem hafa náð góðum úrslitum gegn mjög stórum liðum seinustu ár, þá er þetta frábært fyrir liðið og teymið.''

Hvernig fannst þér frammistaða liðsins?

„Þetta var allt sem ég bjóst við úr leik eins og þessum og það sem ég myndi búast við í hverri viku frá Val. Ég vissi að við myndum þurfa á heppni að halda á tímum en við framkvæmdum leikáætlun okkar vel og leikmennirnir spiluðu frábæran leik.''

Patrick Pedersen spilaði sinn annan leik fyrir Val á þessu tímabili, en hann er að koma til baka eftir erfið og þung meiðsli. Chris var spurður hvort það myndi vera langt í það að áhorfendur myndu sjá fullan 90 mínútna leik hjá Patrick.

„Það mun taka tíma. Aðdáendurnir og klúbburinn sjálfur eru örvæntingarfullir að fá leikmann eins og hann inná völlinn, en mín ábyrgð er það að halda því jafnvægi að hann muni ná að spila næstu ár''.

„Hann er enn að koma til baka og spilar lítið eins og er sem mér finnst best fyrir hann núna, en ég verð að passa að ná rétta jafnvægi varðandi það að þetta sé ekki bara um þetta tímabil hjá honum heldur næstu tímabilin.''


Valur spilar sinn næsta leik næsta fimmtudag gegn Zrinjski Mostar í Bosníu-og-Hersegovínu og eiga engan deildarleik á milli. Hin íslensku liðin hafa verið undir miklu leikja- og ferðaálagi vegna Evrópuleikjanna og hafa einungis nokkra daga til að undirbúa sig.

„Við erum klárlega á heppnu hliðinni varðandi það. Það er frábært fyrir leikmenninna að fá smá hvíld og frábært að dagskráin sé skipulögð þannig. Við munum nýta þennan tíma til að hvíla og síðan fljúga til Króatíu og síðan yfir til Bosníu þar sem við vonumst eftir sterkri frammistöðu næsta fimmtudag og gefa okkur góðan séns að komast áfram.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.