Fotbolti.net
24.07.26 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arnar Gunnlaugs um Aron Einar í Þór: Hefur engin teljandi áhrif

Aron er þremur leikjum á eftir Birki Bjarnasyni sem er leikjahæsti landsliðsmaður Íslands.

Aron er þremur leikjum á eftir Birki Bjarnasyni sem er leikjahæsti landsliðsmaður Íslands.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Eimskip
Aron Einar Gunnarsson skrifaði nýlega undir samning við Þór um að spila með liðinu út tímabilið í Bestu deildinni, en eins og hann sagði við Fótbolta.net er möguleiki á því að hann klári ekki tímabilið með liðinu.

Það eru þreifingar í Katar hvar Aron hefur spilað undanfarin ár og ef heillandi tilboð kemur þaðan mun Aron skrifa þar undir og spila í Katar á komandi tímabili.

Aron, sem er fyrrum landsliðsfyrirliði, hefur verið í öllum landsliðshópum Arnars Gunnlaugssonar nema einum. Fótbolti.net ræddi við Arnar og var landsliðsþjálfarinn spurður hvort að sú staðreynd að Aron spili með Þór hefði mögulega áhrif á val landsliðsþjálfarans í haust. Næsta landsliðsverkefni er seinni hlutann í september en þá hefst Þjóðadeildin.
Arnari leið betur eftir að hafa talað við Sverri - „Ein af ráðgátum fótboltans"
TENGT EFNI

Arnari leið betur eftir að hafa talað við Sverri - „Ein af ráðgátum fótboltans"

Ef þú metur það núna, hefur sú staðreynd að hann sé kominn í Þór áhrif á hans stöðu í landsliðinu?

„Þessi pæling átti sér stað í sumar, við ræddum saman og ég stend alveg við það að þetta hefur engin teljandi áhrif, svo framarlega sem hann er að spila vel og sýnir að hann hafi lappir ennþá," segir Arnar.

„Ég hef talað um það í langan tíma að mér finnst eins og eldri leikmennirnir geti hjálpað okkur í haust, þetta verður erfitt verkefni. En svo snýst þetta um hvort menn séu í standi eða ekki. Það er ekki hvað þú heitir sem kemur þér í hópana, snýst um hvað þú ert að gera úti á velli. Nú til dags sjá allir hvort þú sért í standi eða ekki, gögn og tölfræði sem sýna það."

„Ég fagna því bara fyrst og fremst að sjá hann í Bestu deildinni,"
segir Arnar.

Aron Einar er 37 ára og spilaði sinn fyrsta leik í Bestu deildinni gegn Víkingi um síðustu helgi. Hann verður væntanlega í eldlínunni þegar Þór heimsækir grannana í KA á mánudagskvöld.
Mér finnst eins og eldri leikmennirnir geti hjálpað okkur í haust

Mér finnst eins og eldri leikmennirnir geti hjálpað okkur í haust

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.