Fotbolti.net
23.07.26 - 17:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Freistaði að fara aftur til Íslands en ákvað að harka áfram og takast á við mótlætið úti

Samningsbundinn Esbjerg í Danmörku.

Samningsbundinn Esbjerg í Danmörku.

Canon

Mynd: Esbjerg

Breki Baldursson gekk á mánudag í raðir norska félagsins Åsane en hann kemur á láni frá danska félaginu Esbjerg. Bæði eru þau í næstefstu deildum sinna landa.

Breki er uppalinn Framari, miðjumaður sem fæddur er árið 2006, og var fyrirliði U19 landsliðsins. Hann ræddi við Fótbolta.net um skiptin.
„Það er frábært að vera kominn hingað til Åsane, Bergen er frábær borg. Ég hef mjög góða tilfinningu fyrir þessu, klúbburinn með allt til alls og marga spennandi unga leikmenn, vinstri bakvörðurinn okkar í Esbjerg er héðan."

„Þeir reyndu að fá mig fyrir norska tímabilið en Esbjerg voru erfiðir, en núna náðu allir aðilar saman um að það væri best fyrir mig að taka seinni hluta tímabilsins í Noregi og fá reglulegri spilatíma á flottu getustigi og koma svo til baka fyrir seinni hlutann og úrslitakeppnina í Danmörku,"
segir Breki um aðdragandann.

Hvert er markmiðið?

„Markmiðið er að sjálfsögðu bara að reyna hjálpa liðinu að halda sér frá falli, en líka eins og ég segi að fá reglulegan spilatíma og reynslu sem ég get svo tekið með mér í seinni hluta tímabilsins hjá Esbjerg. Og ég meina, svo er aldrei að vita hvort að þetta muni hjálpa mér að komast aftur nær landsliðinu," segir Breki sem er gjaldgengur í U21 landsliðið næstu árin en hefur til þessa ekki spilað með því liði.

Breki var sterklega orðaður við heimkomu í vetur, félög eins og Valur, FH og uppeldisfélagið Fram voru orðuð við kappann.

Varstu nálægt því að fara til Íslands fyrir tímabilið í Bestu eða jafnvel núna í glugganum?

„Það voru alveg einhverjar þreifingar en Esbjerg voru mjög tregir með það og vildu helst bara lán. Það er auðvitað freistandi að koma heim í umhverfi sem maður þekkir mun betur, en ég ákvað að harka áfram hérna úti og takast á við mótlætið, ég er ennþá bara 19 ára."

Esbjerg keypti Breka af Fram sumarið 2024. Hvernig hefur tíminn í Esbjerg verið til þessa?

„Hann hefur verið mjög skemmtilegur en á sama tíma erfiður. Það voru miklar breytingar eftir fyrsta tímabilið mitt sem hafði töluverð áhrif á þau plön sem var búið að setja upp fyrir mig upprunalega. En mér líður bara vel í Esbjerg og er hrifinn af bæði borginni og klúbbnum," segir Breki að lokum. Hann hefur spilað í 17 leikjum með aðalliði Esbjerg á tveimur árum og byrjaði breki tvo þeirra.

Næsti leikur Åsane, sem situr í næst neðsta sæti norsku B-deildarinnar, verður gegn Egersund á heimavelli næsta sunnudag. 16 umferðir eru eftir af deildinni og Åsane er einu stigi frá öruggu sæti.
Kynntur hjá Åsane í vikunni.

Kynntur hjá Åsane í vikunni.

Canon

Mynd: Asane

Í leik með Fram.

Í leik með Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breki og Sander Eng Strand sem Esbjerg fékk frá Åsane.

Breki og Sander Eng Strand sem Esbjerg fékk frá Åsane.

Canon

Mynd: Esbjerg

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.