Fotbolti.net
24.07.26 - 10:03
Elvar Geir Magnússon

Kane sest við samningaborðið

Kane sest við samningaborðið
Canon

Mynd: EPA

Harry Kane mun hefja formlegar viðræður við Bayern München um nýjan samning við Þýskalandsmeistarana.

Núgildandi samningur Kane við Bæjara rennur út eftir komandi tímabil.
Kane kom til Bayern frá Tottenham 2023 og hefur átt góð ár í þýsku stórborginni. Hann hefur hjálpað liðinu að vinna tvo Þýskalandsmeistaratitla og þýska bikarinn.

Kane skoraði sex mörk fyrir England á HM í sumar og hefur skorað 146 mörk í 134 leikjum fyrir Bayern.

Barcelona hefur lengi sýnt enska landsliðsfyrirliðanum áhuga og þá hafa félög í Sádi-Arabíu einnig verið orðuð við hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.