Fotbolti.net
24.07.26 - 16:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kristinn Freyr í Aftureldingu (Staðfest)

Kristinn Freyr í Aftureldingu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur tilkynnti rétt í þessu að félagið hefði samþykkt tilboð frá Aftureldingu í Kristin Frey Sigurðsson sem semur í Mosfellsbænum.

„Kristinn gengur til liðs við mosfellinga frá og með deginum í dag eftir að hafa verið einn af burðarásum Vals meira og minna síðustu fjórtán árin, með stuttu ævintýri í Svíþjóð og einu tímabili hjá FH," segir m.a. í tilkynningu Vals.

Kristinn spilaði sinn fyrsta leik með Val 2012 eftir að hafa komið frá Fjölni. Alls á hann að baki 247 leiki í efstu deild fyrir Hlíðarendafélagið og vann fjóra stóra titla með Val. Hann varð bikarmeistari 2015 og 2016 og svo Íslandsmeistari 2018 og 2020.

Kristinn, sem er 34 ára skapandi miðjumaður, hefur ekkert spilað á þessu tímabili vegna meiðsla.

Afturelding er í toppsæti Lengjudeildarinnar og á leið í fyrsta bikarúrslitaleikinn í sögu félagsins.
Tilkynning Vals
Valur hefur selt einn okkar dáðasta son, Kristinn Frey Sigurðsson, til Aftureldingar í Mosfellsbæ. Kristinn gengur til liðs við mosfellinga frá og með deginum í dag eftir að hafa verið einn af burðarásum Vals meira og minna síðustu fjórtán árin, með stuttu ævintýri í Svíþjóð og einu tímabili hjá FH.

Það er erfitt að kveðja leikmann sem hefur markað jafn djúp spor í sögu félagsins og Kristinn Freyr. Um leið eru það forréttindi að hafa fengið að njóta hans í rauðu og hvítu treyjunni í gegnum árin.

Kristinn lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki Vals árið 2012 þegar hann kom til okkar frá uppeldisklúbbnum Fjölni. Frá þeim degi varð Hlíðarendi heimili hans og hann einn af þeim leikmönnum sem skilgreindu eitt farsælasta tímabil í sögu Vals.

Alls lék Kristinn Freyr 247 leiki fyrir Val í efstu deild og skoraði í þeim 44 mörk. Þá lék hann 30 leiki fyrir félagið í bikarkeppni KSÍ og skoraði fimm mörk. Að öðrum mótum meðtöldum eru leikir hans fyrir meistaraflokk Vals vel á fjórða hundrað.

Á ferli sínum með Val varð Kristinn tvöfaldur Íslandsmeistari og tvöfaldur bikarmeistari. Árið 2016 var hann valinn besti leikmaður Íslandsmótsins eftir glæsilegt tímabil þar sem hann skoraði 13 mörk í 21 deildarleik og var næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar.

Því miður hefur Kristinn glímt við erfið meiðsli á þessu tímabili og ekki náð að leggja liðinu lið inni á vellinum. Það breytir þó engu um það mikilvæga hlutverk sem hann hefur gegnt hjá félaginu í gegnum árin.

En framlag Kidda verður ekki aðeins mælt í leikjum, mörkum og titlum. Hann hefur alltaf borið hag Vals fyrir brjósti, verið leiðtogi innan sem utan vallar og fyrirmynd fyrir yngri leikmenn félagsins. Hann hefur lagt allt sitt í verkefnið í hvert sinn sem hann hefur klæðst Valsbúningnum og tengsl hans við félagið eru sterk og órjúfanleg.

Nú tekur við nýr kafli hjá Kidda og fjölskyldu hans. Við kveðjum hann með djúpu þakklæti fyrir allt sem hann hefur gefið Val, innan vallar sem utan. Arfleifð hans á Hlíðarenda verður ekki aðeins mæld í leikjum, mörkum og titlum heldur einnig í þeirri menningu, karakter og Valsanda sem hann hefur staðið fyrir í gegnum allan sinn feril.

Um félagaskiptin segir Styrmir Þór Bragason, formaður knattspyrnudeildar Vals:
„Það er auðvitað mjög erfitt að kveðja Kidda sem er drengur góður og mikill félagsmaður. Aðdragandinn að þessu er í raun mjög stuttur en hann býr í Mosfellsbæ og var nýlega að klára að byggja sér hús. Hann á ung börn og á þessum tímapunkti hentar honum betur að vera í öðrum takti með fótboltann. Hann óskaði eftir því við okkur að fá að ræða við Aftureldingu og þó hann eigi ár eftir af samningi vildum við ekki standa í vegi fyrir þeirri ósk. Við óskum Kidda og fjölskyldu hans alls hins besta hjá Aftureldingu og hlökkum til að sjá hann aftur á Hlíðarenda, enda verður hann alltaf einn af okkur.“

Takk fyrir allt, Kiddi. Þú verður alltaf Valsari.
Kristinn Freyr í Aftureldingu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Freyr í Aftureldingu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Freyr í Aftureldingu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristinn Freyr í Aftureldingu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.