24.07.26 - 17:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Stokke kominn í norsku C-deildina

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Benjamin Stokke sem lék á Íslandi tímabilin 2024 og 2025 er búinn að fá félagaskipti til norska félagsins FK Eik Tönsberg. Hann hóf meistaraflokksferil sinn í Tönsberg.
Stokke er fæddur 1990 og kom til Breiðabliks 2024 eftir að hafa orðið markahæsti leikmaður norsku B-deildarinnar tímabilið 2023.
Stokke var ætlað stærra hlutverk en raunin varð hjá Breiðabliki. Blikar fengu Ísak Snæ Þorvaldsson frá Rosenborg skömmu fyrir mót og spilaði hann lykilhlutverk í liðinu sem varð Íslandsmeistari. Stokke kom við sögu í 23 deildarleikjum með Blikum og skoraði fjögur mörk.
Hann skoraði svo sjö mörk í 22 leikjum með Aftureldingu í fyrra þegar liðið féll úr Bestu deildinni. Áður en hann skrifaði undir hjá Aftureldingu hafði hann spilað nokkra leiki með Eik Tönsberg.

Eik Tönsberg er í norsku C-deildinni og er sem stendur í erfiðri stöðu þegar tímabilið er tæplega hálfnað. Liðið er einungis með fjögur stig úr fjórum leikjum og er sjö stigum frá öruggu sæti.