24.07.26 - 16:40
Kári Snorrason
Enn ein félagaskiptin á milli Chelsea og Villa?

Lék á láni með Bayern á síðustu leiktíð.

Mynd: EPA

Aston Villa er í viðræðum um að fá Nicolas Jackson frá Chelsea á láni.
Félögin hafa verið í virkum viðræðum undanfarnar vikur vegna kaupa Chelsea á Morgan Rogers og láns Alejandro Garnacho til Villa.
Jackson lék á síðasta tímabili á láni hjá Bayern Munchen frá Chelsea og skoraði hann ellefu mörk í 34 leikjum með liðinu.
Senegalinn var fenginn til Chelsea frá Villareal sumarið 2023 en hann var undir Unai Emery, núverandi stjóra Aston Villa, hjá spænska félaginu.

Garnacho var fenginn á láni með kauprétti til að salan á Rogers falli ekki undir sömu leikmannaviðskipti samkvæmt reglum FFP.
Þar af leiðandi getur Aston Villa eytt meira á markaðinum og er gert ráð fyrir að samningur Jackson yrði með svipuðu fyrirkomulagi gangi skiptin í gegn.