Fotbolti.net
24.07.26 - 16:19
Kári Snorrason

Umbreyting Sesko vekur athygli

Skoraði alls ellefu mörk í deild á síðasta tímabili.

Skoraði alls ellefu mörk í deild á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: EPA

Umbreyting á holdafari Benjamin Sesko hefur vakið mikla athygli í netheimum.

Man Utd birti mynd af slóvenska sóknarmanninum á samfélagmiðlum sínum á dögunum og voru netverjar fljótir að benda á hve stæltur hann virðist hafa orðið frá því á síðasta tímabili.

Sesko blómstraði eftir að Ruben Amorim var látinn taka poka sinn á síðasta tímabili og skoraði hann níu mörk í sautján leikjum með United eftir brottrekstur Portúgalans.

United spilar nú æfingaleik gegn Frey Alexanderssyni og lærisveinum hans í Rosenborg í Þrándheimi en Sesko er að glíma við meiðsli og er ekki í hóp.

Búist er við því að hann verði búinn að ná sér áður en enska úrvalsdeildin hefst.
Freyr tekur á móti Man Utd - Svona eru byrjunarliðin
TENGT EFNI

Freyr tekur á móti Man Utd - Svona eru byrjunarliðin



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.