24.07.26 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Þorri Heiðar lánaður til ÍR (Staðfest)

Mynd: ÍR

Mynd: ÍR

Þorri Heiðar Bergmann er búinn að skipta yfir til ÍR þar sem hann mun leika á lánssamningi út tímabilið.
Þorri Heiðar kemur á láni frá ÍBV en hann er 19 ára gamall og á 11 leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.
Þorri er fjölhæfur kantmaður sem er uppalinn hjá Víkingi R. og kom við sögu í tveimur leikjum með ÍBV í Bestu deildinni í fyrra.
Hann er fenginn til að hjálpa ÍR í Lengjudeildinni þar sem liðið er aðeins með 13 stig eftir 15 umferðir. Hann verður gjaldgengur til að spila með ÍR þegar Breiðhyltingar taka á móti Fylki á morgun.
„Við bjóðum Þorra hjartanlega velkominn í Breiðholtið og hlökkum til að sjá hann í hvítu og bláu!" segir meðal annars í tilkynningu frá ÍR.