24.07.26 - 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Tottenham fær allt að 20 milljónir frá Middlesbrough (Staðfest)

Lankshear skoraði sitt eina mark með Tottenham gegn Galatasaray í Evrópudeildinni.

Mynd: EPA

Middlesbrough var að ganga frá kaupum á framherjanum efnilega Will Lankshear úr röðum Tottenham.
Championship félagið greiðir 10 milljónir punda fyrir Lankshear og geta 10 milljónir bæst við í árangurstengdar aukagreiðslur.
Lankshear er 21 árs gamall og kom hann með beinum hætti að 16 mörkum í 47 leikjum á láni hjá Oxford United á síðustu leiktíð.
Hann á 4 mörk í 9 leikjum með U19 og U20 landsliðum Englands og gerir fimm ára samning við Middlesbrough.
Ekki er greint frá því ef Tottenham heldur endurkaupsrétti eða hlutfalli af endursöluvirði leikmannsins.

Quickfire questions with Will ???? pic.twitter.com/BiwHtCQxmr
— Middlesbrough FC (@Boro) July 22, 2026