24.08.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Diego Alonso til Malaga. (Staðfest)

Diego Alonso


Diego Alonso

Framherji Valencia, Diego Alonso hefur verið lánaður til Malaga út þetta tímabil. Alonso sem er 28 ára Úrúgvæi hefur ekki náð að festa sig í sessi hjá Valencia en hann kom til liðsins fyrir tímabilið 2000-2001. Seinustu tvö tímabil hefur hann verið í láni. Fyrst hjá Atletico Madrid og á seinasta tímabili var hann á láni hjá Racing Santander, hann er því ansi víðförull og fær nýtt heimili á hverjum vetri.
