24.08.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Embolo til Bandaríkjanna (Staðfest)

Mynd: Atlanta United

Mynd: Atlanta United
Svissneski landsliðsmaðurinn Breel Embolo hefur samið við bandaríska félagið Atlanta United en hann kemur frá franska félaginu Rennes.
Atlanta greiðir 15 milljónir evra fyrir Embolo sem verður þar með einn dýrasti leikmaður í sögu MLS-deildarinnar.
Hann skrifaði undir fjögurra ára samning og verður einn af þremur svokölluðum „Designated Players“ hjá félaginu. Sú regla gerir félögum kleift að greiða ákveðnum leikmönnum mun hærri laun en almennt launaþak deildarinnar heimilar. Hinir tveir hjá Atlanta eru Miguel Almiron og Aleksei Miranchuk.
Embolo er 29 ára gamall framherji sem hefur áður leikið með Basel, Schalke, Borussia Mönchengladbach og Mónakó.
Hann skoraði tvö mörk fyrir Sviss á heimsmeistaramótinu í sumar og er alls kominn með 26 mörk í 92 landsleikjum.

Play it forte ????????
— Atlanta United FC (@ATLUTD) August 23, 2026
Bienvenue à Atlanta, Breel ???????? pic.twitter.com/b6oDgvjzCn