Fotbolti.net
24.08.26 - 23:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Watkins mætti á æfingu og baðst afsökunar

Watkins mætti á æfingu og baðst afsökunar
Canon

Mynd: EPA

Ollie Watkins sneri aftur til æfinga hjá Aston Villa í dag og bað liðsfélaga sína afsökunar eftir að hafa misst af leiknum gegn Brighton í gær sem Villa tapaði 4-0. The Athletic greinir frá.

Watkins æfði ekkert í aðdraganda leiksins eftir að hafa gert félaginu ljóst fyrir að hann vildi yfirgefa Villa. Unai Emery, stjóri Villa, var spurður að því eftir leikinn hvort hann hafi neitað að spila.

Neitaði Ollie Watkins að spila?
TENGT EFNI

Neitaði Ollie Watkins að spila?

„Spurningin er fyrir hann. Ég get bara svarað með þögn minni. Ég get ekki útskýrt, hann getur það."

Watkins hefur verið orðaður við Al-Hilal en Aston Villa hafnaði fjórða tilboðinu sem hljóðaði upp á 45 milljónir punda.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.