Fotbolti.net
24.10.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Jóhann Þórhallsson í KA. (Staðfest)

Jóhann Þórhallsson kominn í KA búninginn.

Jóhann Þórhallsson kominn í KA búninginn.

Canon
Jóhann Þórhallsson sókarmaðurinn sterki úr Þór er genginn til liðs við erkifjendurnar í KA. Jóhann var markahæsti leikmaðurinn í 1.deild karla í sumar með 15 mörk í aðeins 13 leikjum. Þetta kemur frekar á óvart þar sem að Jóhann sagði fyrir skömmu síðan við fréttaritara Fótbolta.net að það væri líklegra að hann færi í AC Milan en KA. Spurning hvort að KA hafi boðið betur en AC Milan. Einnig sagði Jóhann í hinni hliðinni hér á Fótbolti.net með stórum stöfum þegar að hann var spurður hvaða liði hann myndi aldrei spila með: ,,ÉG MYNDI ALDREI SPILA MEÐ K.A." Já maður á aldrei að segja aldrei. 8 félög í Landsbankadeild karla höfðu sett sig í samband við Jóhann en KA hafði vinninginn.
KA sendi frá sér fréttatilkynningu í kvöld um málið og má hana sjá hér að neðan.

Knattspyrnufélag Akureyrar og Jóhann Þórhallsson skrifuðu fyrr í kvöld undir samning þess efnis leikmaðurinn gangi til liðs við KA os spili með félaginu næstu tvö árin. Jóhann Þórhallsson mun því spila með KA í Landsbankadeild karla næsta keppnistímabil. Jóhann er 23 ára sóknarmaður og hefur spilað bæði með Þór Akureyri og KR í efstu deild.
Skrifað var undir samninginn í KA-heimilinu fyrr í kvöld af þeim Jóhanni og Vigni Þormóðssyni formanni knattspyrnudeildar KA.

Að sögn Jóhanns “er hann ánægður með að samkomulag hafi náðst við KA, það sé skemmtilegt að breyta til og hjá honum ríki tilhlökkun að takast á við nýtt verkefni. Metnaður minn og KA fara saman og vonandi tekst okkur að gera stóra hluti í framtíðinni. Jóhann þakkar Þór fyrir ánægjulega tíma.”

Vignir Þormóðsson (innskot blm. formaður knattspyrnudeildar KA) var mjög ánægður með að samningurinn væri í höfn. ”Jóhann Þórhallsson er tvímælalaust einn af bestu sóknarmönnum landsins og mun styrkja okkar lið verulega. Koma hans er stórt skref í þá átt að KA nái enn betri árangri á knattspyrnuvellinum.”


Við þetta má svo að bæta að samkvæmt okkar heimildum er samningurinn uppsegjanlegur að beggja hálfu eftir eitt ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.