Fotbolti.net
24.10.26 - 11:57
Brynjar Ingi Erluson

„Lít ég hræðilega út með þetta?“

„Lít ég hræðilega út með þetta?“
Canon

Mynd: EPA

Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid, segist ekki vera hjátrúarfullur, en hann mætti með myndarlegt skegg á fréttamannafund fyrir stórleikinn gegn Barcelona.
Blaðamenn spurðu Mourinho út í skeggið og hvort hann væri að láta það vaxa af hjátrú, í von um að það myndi færa liðinu góð úrslit. Mourinho sagði það þó alls ekki vera ástæðuna.

„Ég er alls ekki hjátrúarfullur. Lít ég hræðilega út með skegg? Ætti ég að breyta til?“

Mourinho var einnig spurður hvernig hann ætlaði að stöðva Lamine Yamal, stjörnuleikmann Börsunga, en sagðist ekki hafa undirbúið neitt sérstakt plan fyrir hann.

„Við erum ekki með neitt sérstakt plan til að stöðva Lamine. Hann er stórkostlegur leikmaður og Barcelona á skilið mikla virðingu, en það er allt annað mál að fara að breyta öllu okkar leikskipulagi út af einum leikmanni.“

„Allir þeirra leikmenn eru góðir og það sama á við um okkar.“


Mourinho vildi hins vegar lítið gefa upp þegar talið barst að byrjunarliðinu.

„Ég ætla ekki að svara þessari spurningu. Það hefði verið betra fyrir þig að spyrja um eitthvað annað því ég mun ekki ræða leikskipulagið mitt eða hvaða leikmenn byrja leikinn.“

Þá var Mourinho spurður út í brothætta varnarlínu Real Madrid og hvort hann væri að íhuga að leggja meiri áherslu á sóknarleikinn. Portúgalinn var fljótur að átta sig á hvert blaðamaðurinn var að fara.

„Þú ert sniðugur, en ég er ekki heimskur,“ svaraði Mourinho.

Leikur Barcelona og Real Madrid hefst klukkan 19:00 á morgun.
„Lít ég hræðilega út með þetta?“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.