Fotbolti.net
24.10.26 - 12:39
Brynjar Ingi Erluson

Hincapie klár í slaginn

Piero Hincapie

Piero Hincapie

Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir að Martin Zubimendi og Piero Hincapie séu báðir leikfærir og komi til greina í leiknum gegn Everton í dag.
Hincapie og Zubimendi hafa báðir glímt við meiðsli undanfarnar vikur, en Hincapie er nú snúinn aftur til æfinga og gæti verið í leikmannahópnum í dag.

Zubimendi hefur sömuleiðis átt við meiðsli að stríða, en hefur verið í hópnum í síðustu tveimur leikjum. Arteta segir samkeppnina hins vegar mikla og þótt Zubimendi eigi skilið að fá tækifæri þurfi hann, rétt eins og aðrir leikmenn, að vinna sér inn sæti í liðinu.

„Piero æfði með okkur og er klár í slaginn. Zubi fékk nokkur tækifæri áður en hann meiddist, en það er rétt að hann var líka í hópnum í einum leik þar sem hann var nánast hundrað prósent klár í að spila.“

„Hann hefur verið frábær, en sama hvaða hlutverki hann gegnir þarf hann að vinna sér inn réttinn til að spila. Ég geri sömu kröfur til allra leikmanna. Hann er klárlega einn þeirra sem eiga skilið að fá mínútur eins og staðan er núna,“
sagði Arteta.

Hann ræddi einnig samkeppnina á miðjunni og mikilvægi þess að miðjumennirnir láti til sín taka í sóknarleiknum.

„Það sama á við um alla miðjumennina. Martin hefur skorað nokkur mörk, en Bruno og Declan hafa líka gert það. Við þurfum að fá þetta framlag frá þeim í þessum stöðum. Þeir hafa frelsi til að sækja fram og skapa hættu, en verða líka að sýna þá grimmd sem þarf til að gera andstæðingnum erfitt fyrir,“ sagði Arteta ennfremur.

Arsenal tekur á móti Everton klukkan 14:00 í dag.
Martin Zubimendi

Martin Zubimendi

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.