24.10.26 - 11:32
Brynjar Ingi Erluson
Rúnar Gissurar leggur hanskana á hilluna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Rúnar Gissurarson hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna, 23 árum eftir að hann hóf meistaraflokksferil sinn.

TENGT EFNI
Rúnar Gissurar: Tók sjö ár af Counter Strike og var fullur allar helgar
Rúnar er 39 ára gamall og hóf meistaraflokksferil sinn með Reyni Sandgerði árið 2003, en þá lék hann sem útileikmaður.
Hann sagði sjálfur frá því í viðtali við Fótbolta.net að hann hefði hætt í fótbolta í sex eða sjö ár áður en vinur hans fékk hann með sér á æfingu hjá Þrótti Vogum, sem vantaði markvörð.
Rúnar lék sjö leiki með Þrótti áður en hann sneri aftur heim í Reyni tímabilið á eftir. Hann var í liðinu sem vann 4. deildina árið 2018, en árin þar á undan hafði hann skipst á að spila með Reyni og Víði.
Árið 2020 gekk hann til liðs við Njarðvík og lék eitt tímabil með liðinu í 2. deildinni áður en hann sneri enn á ný til Reynis.
Árið 2022 kom svo stór áfangi á ferlinum þegar hann þreytti frumraun sína í Bestu deildinni með Keflavík. Hann lék fjóra deildarleiki það sumar og fór síðan til Þróttar Voga árið eftir þar sem hann spilaði í 2. deildinni.
Sumrin 2024 og 2025 lék hann samtals þrjá leiki í Lengjudeildinni og var hluti af liðinu sem tryggði sér sæti í Bestu deildinni árið 2025.
Rúnar lék alls 237 meistaraflokksleiki á ferlinum, en nú hefur hann ákveðið að láta gott heita.
„Takk fyrir mig knattspyrna,“ skrifaði Rúnar á Instagram.