24.10.26 - 12:14
Brynjar Ingi Erluson
Fabregas ekki á förum frá Como

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Cesc Fabregas, þjálfari ítalska liðsins Como, segist ekki hafa hug á að færa sig um set, en þetta kom fram á fréttamannafundi fyrir leik liðsins gegn Sassuolo í dag.
Fabregas hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Manchester United undanfarna daga, en félagið íhugar alvarlega að skipta um stjóra eftir erfiða byrjun á tímabilinu undir stjórn Michael Carrick.
Spánverjinn stýrði Como til sannfærandi 4-1 sigurs gegn United í Meistaradeildinni í vikunni, en þrátt fyrir orðróminn segist hann ekki hafa nokkurn áhuga á að yfirgefa ítalska félagið.
„Ég hef aldrei hugsað um að fara. Um leið og ég færi að hugsa um það væri tími minn hér í raun á enda. En sú hugsun hefur aldrei hvarflað að mér,“ sagði Fabregas.
Antonio Conte, Julian Nagelsmann, Eddie Howe og Fabian Hürzeler hafa einnig verið orðaðir við United. Conte hefur þó þegar sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segist ekki vera í viðræðum við félagið og þá er Hürzeler sagður hafa engan áhuga á að taka við liðinu.