Fotbolti.net
24.10.26 - 11:30
Ívar Björgvinsson

Ungu leikmennirnir í sviðsljósinu þegar Akureyrarliðin berjast fyrir lífi sínu

Ungu leikmennirnir í sviðsljósinu þegar Akureyrarliðin berjast fyrir lífi sínu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það verður gríðarleg spenna í lokaumferð Bestu deildar karla á laugardaginn þegar KA og Þór berjast um að halda sæti sínu í deildinni. Þórsarar eru með 27 stig, einu stigi meira en KA, og eru því með örlögin í eigin höndum þegar þeir heimsækja FH í Kaplakrika. KA tekur hins vegar á móti föllnum Eyjamönnum og þarf að treysta á hagstæð úrslit úr leik Þórs. Það er ansi áhugavert að bæði Akureyrarliðin hafa treyst mikið á unga leikmenn í sumar, en þau eru bæði meðal þeirra fimm félaga sem hafa gefið leikmönnum fæddum árið 2005 eða síðar mestan hluta leikmínútna sinna.
Sérstaklega vekur athygli hversu stór hlutverk ungir leikmenn hafa fengið hjá Þór en alls hafa 21,2% skráðra mínútna félagsins farið til leikmanna fæddra árið 2005 eða síðar. Einar Freyr Halldórsson, fæddur árið 2008, hefur spilað 2.086 mínútur og jafnaldri hans Ásbjörn Líndal Arnarsson hefur fengið 1.498 mínútur. Þá hafa Sverrir Páll Ingason, einnig fæddur 2008, og Þorri Ingólfsson, fæddur árið 2009, fengið 775 og 622 mínútur. Þessir ungu strákar hafa heldur betur látið til sín taka en í 3-1 sigri Þórs gegn Stjörnunni um síðustu helgi skoruðu Ásbjörn, Sverrir Páll og Þorri allir sitt markið hver og átti Einar Freyr stoðsendinguna í þriðja markinu. Það verður að teljast ansi merkilegt í ljósi þess hversu mikilvægur leikurinn var fyrir Þórsara í fallbaráttunni.

Hjá KA er hlutfallið raunar enn hærra en 23,7% skráðra leikmínútna félagsins hafa farið til leikmanna fæddra árið 2005 eða síðar. Markús Máni Pétursson, fæddur árið 2006, hefur fengið 2.150 mínútur og verið einn þeirra ungu leikmanna sem hafa spilað hvað mest í deildinni. Það er því ljóst að bæði Akureyrarliðin hafa gefið ungum leikmönnum mikið traust á þessu tímabili, þrátt fyrir að hafa verið í erfiðri fallbaráttu. Það verður sérstaklega áhugavert að fylgjast með því hvort ungu leikmennirnir nái að hjálpa sínum liðum að halda sæti sínu meðal þeirra bestu á laugardaginn.

Fótbolti.net hefur tekið saman ítarlega tölfræði um notkun ungra leikmanna hjá öllum tólf félögum Bestu deildarinnar á þessu tímabili. Þar kemur meðal annars í ljós að 17,2% allra skráðra leikmínútna deildarinnar hafa farið til leikmanna fæddra árið 2005 eða síðar, en munurinn á félögunum er gríðarlegur. FH er efst á listanum með 26,5% á meðan Íslandsmeistarar Víkings eru neðstir með aðeins 5,4%. Í ítarlegum áskriftarpistli Fótbolta.net er farið yfir áhugaverðustu niðurstöðurnar, hvaða félög treysta mest á unga leikmenn og hvernig það tengist árangri liðanna í deildinni.


Smelltu á pistilinn hér að neðan til þess að gerast áskrifandi og lesa hann í heild sinni.

Hvaða lið treysta á unga leikmenn? - Íslandsmeistararnir neðstir á listanum
TENGT EFNI

Hvaða lið treysta á unga leikmenn? - Íslandsmeistararnir neðstir á listanum


Þorri skoraði þriðja mark Þórs í sigrinum gegn Stjörnunni í síðustu umferð.

Þorri skoraði þriðja mark Þórs í sigrinum gegn Stjörnunni í síðustu umferð.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markús Máni hefur spilað yfir 2000 mínútur fyrir KA í sumar.

Markús Máni hefur spilað yfir 2000 mínútur fyrir KA í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.