24.10.26 - 11:42
Brynjar Ingi Erluson
Missir af El Clásico

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Franski varnarmaðurinn Jules Kounde missir af stórleik Barcelona gegn Real Madrid í El Clásico um helgina.
MARCA segir nánast öruggt að Kounde missi af leiknum vegna meiðsla.
Hann meiddist gegn Real Betis í síðustu umferð og missti af leiknum gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni í vikunni. Kounde æfði heldur ekki með liðinu í dag og því nánast útilokað að hann verði með á morgun.
Kounde bætist þar með á meiðslalistann hjá Börsungum, en fyrir eru þeir Eric Garcia, Andreas Christensen, Dani Olmo og Roony Bardghji.
Varnarlína Barcelona er því afar þunnskipuð, rétt eins og gegn PSG í vikunni, og verður áhugavert að sjá hvernig Hansi Flick leysir þann vanda gegn erkifjendunum á morgun.