Fotbolti.net
23.10.26 - 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bað stjóran afsökunar á lélegri frumraun

Bað stjóran afsökunar á lélegri frumraun
Canon

Mynd: Everton

Christian Norgaard bað David Moyes afsökunnar á lélegri frammistöðu í sínum fyrsta leik fyrir Everton í 2-0 tapi gegn Chelsea um síðustu helgi.

Norgaard kom inn á sem varamaður undir lokin og gaf boltann oft frá sér, hann var heppinn í eitt skipti að það hafi ekki endað með marki.
Norgaard gekk til liðs við Everton frá Arsenal í sumar en hefur verið að glíma við meiðsli. Moyes sagðist hafa íhugað að setja hann beint í byrjunarliðið.

„Þegar við settum hann inn á áttuðum við okkur á því að hann var ekki kominn eins langt og við vonuðumst eftir. Við bjuggumst ekki við því að hann væri í topp formi fyrr en eftir næsta landsleikjahlé þar sem hann fékk ekki almennilegt undirbúningstímabil," sagði Moyes.

„Hann var sá fyrsti sem kom til mín og baðst afsökunar og áttaði sig á því að hann væri lengra frá þessu en við öll héldum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.