Helgi Mikael Jónasson dæmir leik Lincoln Red Imps FC og FC Kaupmannahafnar í Sambandsdeild Evrópu.
Leikurinn fer fram á Gíbraltar á morgun.
Honum til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Þórður Arnar Árnason. Fjórði dómari verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson.
Leikurinn fer fram á Gíbraltar á morgun.
Honum til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Þórður Arnar Árnason. Fjórði dómari verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson.
Lincoln er í neðsta sæti án stiga en Íslendingaliðið FCK er á toppi riðilsins með níu stig, tveimur stigum á undan Slovan Bratislava og PAOK.
Íslendingarnir Ísak Bergmann Jóhannesson, Andri Fannar Baldursson og Hákon Arnar Haraldsson leika með FCK.
Athugasemdir