Fotbolti.net
24.11.21 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Traore á leið til Liverpool? - Gæti verið falur fyrir 20 milljónir

Traore á leið til Liverpool? - Gæti verið falur fyrir 20 milljónir
Canon

Mynd: Getty Images

Wolves er sagt tilbúið að hlusta á tilboð í sóknarmanninn Adama Traore. Það er <i>Football Insider</I> sem greinir frá þessu.

Liverpool hefur haft áhuga á Traore í talsverðan tíma. Wolves er núna sagt tilbúið að hlusta á tilboð þar sem Traore á einungis átján mánuði eftir af samningi sínum og er ekki líklegur til að framlengja hann.
Úlfarnir vilja ganga frá kaupum á Hwang Hee-chan sem er á láni hjá félaginu frá RB Leipzig.

Traore gæti verið falur fyrir 20 milljónir punda. Traore er 25 ára gamall og hefur spilað þrettán leiki í öllum keppnum á tímabilinu. Frá komu sinni til Wolves hefur hann spilað 114 deildarleiki en einungis skorað sjö mörk sem litið er á sem löst á hans leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.