Fotbolti.net
24.12.04 - 07:16
Hafliði Breiðfjörð

Man Utd lánar Spector til Blackburn (Staðfest)

Man Utd lánar Spector til Blackburn (Staðfest)
Canon
Manchester United samþykkti í gær að lána bandaríska varnarmanninn Jonathan Spector til Blackburn Rovers út leiktíðina. Mark Hughes fyrrum leikmaður United sem nú stjórnar Blackburn hafði mikinn áhuga á að fá leikmanninn og Alex Ferguson stjóri United samþykkti það með bros á vör.
Spector hefur lítið fengið af tækifærum í liði United á leiktíðinni en þó leikið eitthvað. Hann vakti athygli á æfingamóti í Bandaríkjunum í sumar en eftir komu Gabriel Heinze varð ljóst að nánast vonlaust yrði fyrir hann að vinna sér sæti í vinstri bakverðinum.

,,Vonandi mun Jonathan með þessu fá tækifæri til að spila meira og hann græðir meira á því en ef hann spilaði með varaliði okkar," sagði Ferguson.

,,Þetta eru frábær skipti fyrir hann og við erum vissir um að hann mun koma til baka sem mun betri leikmaður. Við teljum að Jonathan eigi mjög góða möguleika á að verða aðalliðsleikmaður hjá Manchester United og þessi skipti munu hjálpa honum að flýta þeirri þróun."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.