24.12.04 - 07:53
Hafliði Breiðfjörð
Fyrirliði Suður Afríku til Blackburn (Staðfest)

Aaron Mokoena fyrirliði Suður Afríku er á leið til Blackburn Rovers en kaupverðið er 600 þúsund pund frá belgíska félaginu Racing Genk. Mokoena er 24 ára gamall og mun koma til félagsins um leið og félgaskiptaglugginn opnar í janúar.
,,Aaron er fyrirliði Suður Afríku og getur spilað sem miðvörður eða á miðri miðjunni," sagði Mark Hughes stjóri Blackburn í gærkvöld.
,,Við höfum komist að samkomulagi við Racing Club Genk frá Belgíu og við leikmanninn sjálfan. Hann vakti athygli okkar á æfingum. Hann er frábær íþróttamaður og skipulagður, mjög mikið talandi og verður góð viðbót."