Karim Benzema átti vægast sagt slæman dag á sunnudaginn síðastliðinn.
Hann var í byrjunarliði Real Madrid sem gerði 2-2 jafntefli við Elche í spænsku deildinni.
Hann fékk tækifæri á að koma liðinu yfir eftir rúmlega hálftíma leik þegar hann tók vítaspyrnu en spyrnan fór forgörðum. Hann þurfti síðan að fara af velli vegna meiðsla síðar í leiknum.
Svo þegar heim var komið eftir leikinn sá hann að það var búið að brjótast inn á heimilið hans. Það var allt í rúst en það er ekki vitað hverju var stolið.
Athugasemdir