Fotbolti.net
25.01.22 - 10:10
Elvar Geir Magnússon

Vlahovic fær líflátshótanir frá stuðningsmönnum Fiorentina

Vlahovic fær líflátshótanir frá stuðningsmönnum Fiorentina
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalskir fjölmiðlar segja að sóknarmaðurinn Dusan Vlahovic sé að færast nær Juventus. Þessi serbneski sóknarmaður Fiorentina er sagður hafa gert munnlegt samkomulag við Juventus.

Þessar fréttir fara illa í harðkjarna stuðningsmenn Fiorentina og voru borðar hengdir upp með líflátshótunum og fleiri ljótum skilaboðum fyrir utan heimavöll félagsins.

Stuðningsmönnum Fiorentina er afskaplega illa við Juventus og þeir leikmenn sem fara frá Flórens og til Juve eru álitnir svikarar.

<i>„Verðir þínir munu ekki bjarga lífi þínu, þetta er búið fyrir þig,"</i> stóð á einum af þeim borðum sem hengdir voru upp í skjóli nætur.

Vlahovic hefur verið duglegur við markaskorun og orðið einn eftirsóttasti sóknarmaður Evrópu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.