Fotbolti.net
29.10.26 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ratcliffe er ekki bara óvinsæll hjá Bubba Morthens

Sir Jim Ratcliffe.

Sir Jim Ratcliffe.

Canon

Mynd: EPA

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens hefur ítrekað gagnrýnt viðskipti enska milljarðarmæringsins Jim Ratcliffe hér á Íslandi. Ratcliffe er fjórði stærsti jarðeigandi á Íslandi á eftir opinberum aðilum. Bubbi er alls enginn aðdáandi en það eru ekki stuðningsmenn Manchester United heldur.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 26. október á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Þú getur skráð þig með því að smella hérna.
Þegar Ratcliffe keypti hlut í Manchester United í ársbyrjun 2024 fylgdu honum vonir um nýtt upphaf. Glazer-fjölskyldan hafði verið skotmark gagnrýni í nær tvo áratugi og margir stuðningsmenn vonuðust til þess að með komu breska milljarðamæringsins, sem sjálfur er frá stóra Manchester-svæðinu, myndi marka tímamót. Ratcliffe samdi um að taka yfir fótboltalegan rekstur félagsins og ætlaði að koma lagi á það sem hafði farið úrskeiðis.

Ratcliffe og fyrirtæki hans, INEOS, keyptu minnihluta í félaginu, um 25% hlut, fyrir um 1,25 milljarða punda og fengu umsjón með fótboltalegum rekstri Manchester United. Glazer-fjölskyldan hélt hins vegar meirihlutaeign sinni. Þar með var nýr áhrifavaldur kominn inn í stjórnkerfið, en þeir eigendur sem stuðningsmenn höfðu gagnrýnt árum saman voru enn við stjórnvölinn.

Ratcliffe hefur ekki farið leynt með að hann telji rekstur Manchester United hafa verið ófullnægjandi. Hann hefur talað um nauðsyn þess að taka erfiðar og óvinsælar ákvarðanir til að koma félaginu á réttan kjöl. Sú stefna hefur meðal annars birst í miklum niðurskurði, uppsögnum starfsfólks og hækkun miðaverðs. Aðgerðirnar hafa verið réttlættar með þörfinni á að draga úr kostnaði og bæta fjárhagsstöðu félagsins, en þær hafa jafnframt aukið gremju meðal stuðningsmanna.

Fyrir stuðningsmenn er vandinn því ekki lengur eingöngu fólginn í Glazer-fjölskyldunni. Ratcliffe hefur sjálfur orðið skotmark gagnrýni, bæði vegna ákvarðana sem snúa að stuðningsfólki og vegna þess að breytingarnar hafa ekki enn skilað þeim árangri sem margir vonuðust eftir. Nýja eignarhaldsfyrirkomulagið að einhverju leyti tekið við sömu tortryggni og áður beindist að Glazer-fjölskyldunni.

Halldór Marteinsson, stuðningsmaður Manchester United, er ekki sannfærður um að uppruni Ratcliffe breyti miklu um þetta.

„Tjah, það sem Ratcliffe hefur allavega er að hann er þó frá svæðinu. Þetta gæti þá verið einhvers konar leið til að finna aftur þessa tengingu á milli eigenda Manchester United og borgarinnar eða íbúa hennar. En ég kann samt ekki vel við Ratcliffe og held að þessi borgartenging sé aðallega tilviljun. Fyrst og fremst er þetta enn einn siðblindi milljarðamæringurinn. Hann og Glazerarnir eru sama týpa af fólki.“

Gagnrýnin á Ratcliffe snýst þó ekki eingöngu um niðurskurð og kostnað. Í ítarlegri úttekt Football365, sem birtist nýverið voru talin upp 23 atriði sem miðillinn telur til mistaka hans frá því hann kom inn í Manchester United. Þar er meðal annars gagnrýnt hvernig staðið var að ráðningum og brotthvarfi stjóra, ráðningu Dan Ashworth sem yfirmanns fótboltamála og þeirri ákvörðun að segja upp 250 starfsmönnum á sama tíma og félagið hélt áfram að eyða háum fjárhæðum í leikmenn.

Sérstaklega er bent á óstöðugleikann í stefnu félagsins. United réð Erik ten Hag áfram eftir bikarsigur árið 2024, rak hann nokkrum mánuðum síðar og réð Ruben Amorim um mitt tímabil áður en honum var sagt upp í janúar 2026. Í millitíðinni hafði félagið fjárfest í leikmönnum sem áttu að henta ákveðinni leikaðferð, en þurfti svo að endurhugsa uppbyggingu liðsins þegar stefnan breyttist á ný.

Þetta er kjarni gagnrýninnar á Ratcliffe: Hann kom inn til að koma skipulagi á reksturinn, en ákvarðanirnar hafa alls ekki gefið til kynna að félagið hafi fundið skýra og stöðuga stefnu. Á meðan niðurskurðurinn hefur verið sýnilegur starfsfólki og stuðningsmönnum hefur reynst erfiðara að sýna fram á að breytingarnar hafi skilað samsvarandi framförum á vellinum.

Af hverju eru eigendur Man Utd svona gífurlega hataðir?
TENGT EFNI

Af hverju eru eigendur Man Utd svona gífurlega hataðir?

Bubbi Morthens.

Bubbi Morthens.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ratcliffe keypti hlut í Manchester United 2024 og stjórnar fótboltalegu hlið félagsins.

Ratcliffe keypti hlut í Manchester United 2024 og stjórnar fótboltalegu hlið félagsins.

Canon

Mynd: EPA

Úr leik hjá Manchester United.

Úr leik hjá Manchester United.

Canon

Mynd: EPA

Ratcliffe er ekki bara óvinsæll hjá Bubba Morthens
Canon

Mynd: EPA

Ratcliffe er ekki bara óvinsæll hjá Bubba Morthens
Canon

Mynd: EPA - Samsett

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.