29.10.26 - 11:19
Elvar Geir Magnússon
Sesko spilar ekki meira á þessu ári


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Manchester United gerir ráð fyrir að Benjamin Sesko verði frá keppni fram á komandi ár hið minnsta vegna meiðsla á sköflungi.
Þessi 23 ára slóvenski sóknarmaður er á batavegi en búist er við að endurhæfingin vari fram yfir áramót. Auk þess mun hann þurfa tíma til að komast í fullt leikform.
Þessi 23 ára slóvenski sóknarmaður er á batavegi en búist er við að endurhæfingin vari fram yfir áramót. Auk þess mun hann þurfa tíma til að komast í fullt leikform.

TENGT EFNI
Óttast að Sesko verði lengi frá
Hann meiddist upphaflega á síðasta tímabili, þegar hann fékk spark í sköflunginn, en hélt samt áfram að spila síðustu tvo mánuði tímabilsins á meðan United tryggði sér sæti í Meistaradeildinni.
Sesko hafði verið lítið sem ekkert meiddur allan sinn feril, áður en hann gekk í raðir Manchester United. Hann skoraði tólf mörk fyrir United á síðasta tímabili.
Sesko hafði verið lítið sem ekkert meiddur allan sinn feril, áður en hann gekk í raðir Manchester United. Hann skoraði tólf mörk fyrir United á síðasta tímabili.
