Fotbolti.net
25.01.24 - 10:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hazard hitti boltastrákinn sem hann sparkaði í fyrir 11 árum síðan

Eftir sparkið fræga.

Eftir sparkið fræga.

Canon

Mynd: Getty Images

Boltastrákurinn fyrrverandi, Charlie Morgan, varð frægur á svipstundu þegar Eden Hazard, þáverandi leikmaður Chelsea, fékk rauða spjaldið í deildabikarleik gegn Swansea fyrir rúmum ellefu árum síðan.
Morgan lá ofan á boltanum og reyndi að tefja leikinn við litla hrifningu hjá Hazard sem reyndi að sparka í boltann undir honum. Hazard sparkaði í Morgan og fékk í kjölfarið að líta rauða spjaldið.

Hazard fékk svo þriggja leikja bann út af atvikinu.

Núna ellefu árum seinna hafa átt sér stað sögulegir endurfundir því Hazard og Morgan hittust í gær. Þeir spiluðu saman golf og fengu sér einn drykk saman.

Hazard er í dag hættur að spila fótbolta eftir farsælan feril á meðan Morgan hefur gert það afar gott í viðskiptaheiminum. Hann og félagi hans settu á markað drykkinn AU Vodka sem hefur sannarlega slegið í gegn, og er Morgan á meðal ríkustu einstaklinga Bretlands á sínum aldri.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.