Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 25. febrúar 2021 13:00
Magnús Már Einarsson
Guardiola: Eigum mikið af pening til að kaupa ótrúlega leikmenn
Pep Guardiola.
Pep Guardiola.
Mynd: Getty Images
Eftir 2-0 útisigur Gladbach í Meistaradeildinni í gærkvöldi var Pep Guardiola, stjóri Manchester City, spurður út í leyndarmálið á bakvið velgengni liðsins.

Manchester City er í langefsta sæti í ensku úrvalsdeildinni og liðið er ógnarsterkt um þessar mundir.

„Við eigum mikið af pening til að kaupa mikið af ótrúlegum leikmönnum," svaraði Guardiola brosandi aðspurður út í lykilinn að velgengninni.

„Það er sattt. Við gætum ekki gert þetta án þess að vera með góða leikmenn."

„Samheldnin í þessum hóp...leikmennirnir eru stórkostlegir og við eigum ótrúlegt samband. Þeir spila alla leiki og hugsa einungis um að vinna."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner