Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 25. apríl 2021 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Skoraði með hælnum í Mjólkurbikarnum
Kristófer Páll skoraði flott mark fyrir Reyni.
Kristófer Páll skoraði flott mark fyrir Reyni.
Mynd: Reynir S.
ÍBV er komið áfram í aðra umferð Mjólkurbikars karla eftir öruggan sigur á Reyni Sandgerði í Vestmannaeyjum í dag.

Staðan var 2-0 í hálfleik eftir tvö mörk úr vítapsyrnum en Reynismenn minnkuðu muninn í upphafi seinni hálfleiks. Eyjamenn innsigluðu svo sigurinn með mörkum í restina.

Mark Reynis gerði Kristófer Páll Viðarsson en það var virkilega laglegt.

Hann fékk boltann í teignum með bakið í markið en var fljótur að átta sig og skaut boltanum með hælnum í markið.

Virkilega vel gert. Eyjamenn vildu fá rangstöðu en markið fékk að standa. Hægt er að sjá markið hér að neðan en það kemur eftir 6 mínútur og 30 sekúndur í myndbandinu. Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu á ÍBV TV.




Athugasemdir
banner
banner