Fotbolti.net
25.04.22 - 20:49
Anton Freyr Jónsson

Nonni: Bara ein tölfræði sem skiptir máli

Auglýsing
Jón Sveinsson þjálfari Fram

Jón Sveinsson þjálfari Fram

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er hundsvekktur. Við lögðum mikið í leikinn en uppskárum ekkert því miður og það var fúllt voru fyrstu viðbrögð Jón Sveinssonar þjálfara nýliða Fram eftir 4-2 tapið gegn FH á Kaplakrikavelli fyrr í kvöld.

Framarar voru með leikinn allt þangað til á 75.mínútu leiksins þegar FH setti þrjú og var Jón Sveinsson spurður út í hvað hafi valdið því að liðið fékk á sig þrjú mörk undir lok leiksins. 

„Við vorum komnir svolítið aftarlega á völlinn þannig þeir fengu tíma til að pressa okkur niður og við náðum ekki alveg að slaka á og spila boltanum til að koma okkur framar á völlinn og þá er alltaf stutt að markinu og það endaði þannig að þeir ná að jafna og svo í 3-2 þá erum við að pressa þá í restina þegar fjóðra markið kemur í síðustu spyrnu leiksins þannig það breytti ekki miklu máli."

Framarar komu upp eftir að hafa rúllað yfir Lengjudeildina í fyrra og er liðið ekki komið upp til að leggjast í vörn heldur vill liðið spila fótbolta. 

„Við viljum spila fótbolta það er alveg rétt, fannst við eiga í pínu basli í dag. Við vorum fínir á móti KR en á endanum þá er bara ein tölfræði sem skiptir máli í þessu og það eru mörk skoruð og við erum búnir að tapa tveimur leikjum með því að fá á okkur fjögur mörk og það er eitthvað sem við þurfum að skoða."


Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan. 
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.