Ögmundur ekki náð að jafna sig af meiðslum
Markvörðurinn Frederik Schram er kominn aftur til Vals en hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Ástæða endurkomunnar er sú að Ögmundur Kristinsson hefur ekki náð sér að fullu eftir meiðsli, þrátt fyrir mikinn vilja og mikla vinnu.
„Það er auðvitað alltaf erfitt þegar menn eru að glíma við langvarandi meiðsli og við erum virkilega svekktir með stöðuna á Ögmundi. Það er samt enginn svekktari en Ömmi sjálfur. Hann hefur lagt allt í að ná sér góðum, en stundum fara hlutirnir ekki eins og maður vonast eftir. Hann hefur verið mjög faglegur í öllu síðan hann kom til okkar og lyft mörgu á hærra level með sínu flotta viðhorfi," segir Björn Steinar Jónsson formaður knattspyrnudeildar Vals.
„Það jákvæða við stöðuna er þó að Stefán Þór (Ágústsson), ungur og efnilegur markvörður, hefur fengið tækifæri í vetur og staðið sig mjög vel í byrjun móts. Ömmi hefur hjálpað Stefáni mikið og á stórt hrós skilið fyrir það hvernig hann hefur stutt við Stefán. Svo eigum við líka fleiri unga og efnilega markmenn í félaginu sem við horfum til eftir nokkur ár.“

Alvöru samkeppni
Stutt er í að félagaskiptaglugginn loki hér á landi og því segir Björn að Valur hafi brugðist við þessari óvissu með Ögmund með því að semja við Frederik Schram.
„Fredrik er auðvitað bara Valsari og frábær gaur sem ég hef haldið góðu sambandi við síðan hann fór. Þegar ég greindi honum frá stöðunni hjá okkur var strax ljóst að þau fjölskyldan voru til í að skoða það að koma aftur til okkar. Við vorum síðan fljótir að ná samkomulagi við Roskilde og því ljóst að hann verður leikmaður okkar á ný. Við höfum lagt mikið í liðið okkar í vetur og ljóst að það verður alvöru samkeppni um markmannsstöðuna eins og aðrar stöður í liðinu.“
Björn segist vonast til þess að Ögmundur verði hluti af þeirri samkeppni en ómögulegt sé að segja til um á þessari stundu hvernig það muni þróast.
Frederik Schram, sem er þrítugur, lék með Val á árunum 2022–2024 og spilaði 55 leiki. Hann kemur nú aftur til Hlíðarendafélagsins eftir stutta dvöl hjá danska félaginu FC Roskilde.
Valur er með fimm stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar í Bestu deildinni en liðið mun á mánudaginn leika gegn Víkingum undir ljósunum að Hlíðarenda við frábæra umgjörð.
Athugasemdir