27.11.26 - 15:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þjálfaði þrjár verðandi landsliðskonur á Ísafirði

Bjarni er goðsögn í íslenskum fótbolta.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni þjálfaði kvennalið ÍBÍ sumarið 1983.

Mynd: Saga fótboltans á Ísafirði

Bjarni lagði nýverið þjálfaramöppuna á hilluna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni er goðsögn í íslenskum fótbolta.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Jóhannsson kom víða við sem þjálfari á sínum glæsta ferli. Árið 1982 fór hann vestur á Ísafjörð til að spila með ÍBÍ sem var þá nýliði í efstu deild karla. Á Ísafirði stýrði Bjarni í fyrsta sinn meistaraflokksliði þegar hann tók við kvennaliði ÍBV.
Í öðrum hluta í ítarlegu viðtali við Víði Sigurðsson segir Bjarni frá árunum 1982 til 1986 á Ísafirði, Akureyri, Neskaupstað og Noregi.
Hægt er að nálgast fyrsta part viðtalsins neðst í fréttinni en hann er fyrir áskrifendur Fótbolta.net. Fyrsta vikan í áskrift er frí.
Þú getur keypt áskrift með því að smella hérna.

Í þessum hluta viðtalsins segir Bjarni meðal annars frá fyrsta meistaraflokksstarfi sínu. Á Ísafirði tók Bjarni upp þráðinn sem þjálfari og stýrði meistaraflokksliði í fyrsta sinn á ferlinum, þá 25 ára gamall, en hann tók við kvennaliði ÍBÍ sem lék í næstefstu deild Íslandsmótsins árið 1983, og hafði þreytt frumraun sína þar árið áður þegar 2. deildin, eins og næstefsta deildin hét þá, var stofnuð.
„Málið var að það vantaði þjálfara fyrir kvennalið ÍBÍ sem var nokkuð öflugt. Þarna voru stelpur sem stunduðu skíði og fleiri íþróttagreinar, þar á meðal Stella Hjaltadóttir, Ingibjörg Jónsdóttir og Halldóra Gylfadóttir, allt hörkustelpur sem áttu allar eftir að gera það gott í fótboltanum, spila í efstu deild og leika landsleiki fyrir Íslands hönd. Þetta er magnað því þessar stelpur komu frá Bolungarvík, Tálknafirði og Ísafirði,“ segir Bjarni en Stella átti eftir að leika með KA og Val, Ingibjörg með Val og Halldóra með ÍA. Halldóra vann sjö stóra titla með ÍA á árunum 1984-93 og Ingibjörg sex með Val á árunum 1986-1990.
Þá varð markvörðurinn Vala Úlfljótsdóttir tvívegis Íslandsmeistari með ÍA nokkrum árum síðar.
Ömmur og langömmur í fótbolta
„Á Ísafirði er einmitt frábær saga af kvennafótbolta sem var stundaður þar eldsnemma á 20. öldinni, á árunum milli 1910 og 1920. Ísfirðingar voru því frumkvöðlar í kvennafótbolta á Íslandi. Þessar stelpur sem voru í liðinu hjá mér 1983 áttu margar hverjar ömmur eða langömmur sem höfðu spilað fótbolta og verið í þessu liði á sínum tíma. Um þetta lið var fjallað í bók um sögu fótboltans á Ísafirði,” segir Bjarni en stúlkurnar í ÍBÍ gerðu það gott undir hans stjórn, höfnuðu í þriðja sæti deildarinnar og tryggðu sér með því sæti í efstu deild þar sem þær áttu eftir að spila þrjú af næstu fimm árum.
Bjarni fór því með lið upp um deild í frumraun sinni sem þjálfari og átti eftir að leika þann leik nokkrum sinnum á ferlinum.
Hér fyrir neðan er hægt að lesa fréttina í heild sinni.

TENGT EFNI
Bjarni Jóh 2: Fór til Noregs og lærði hjá Drillo