Fotbolti.net
25.05.04 - 16:10
Magnús Már Einarsson

Barcelona kaupir Van Bronckhorst (Staðfest)

Bronckhorst er til vinstri eins og glöggir lesendur hafa kannski þegar fattað.

Bronckhorst er til vinstri eins og glöggir lesendur hafa kannski þegar fattað.

Canon
Barcelona hefur gengið frá kaupum á Hollendingnum Giovanni van Bronckhorst frá Arsenal. Hinn 29 ára gamli van Bronckhorst hefur verið í láni hjá Barcelona á þessu tímabili eftir að hafa fengið fá tækifæri með Arsenal. Hann leikur ýmist á miðjunni en hjá Barcelona hefur hann fest sig í sessi sem vinstri bakvörður liðsins númer eitt.
Ekki hefur kaupverðið hjá Barcelona verið gefið upp en sem komið er.

Í fleiri fréttum frá Barcelona þá hefur Michael Reiziger ekki ennþá verið boðinn nýr samningur og er framtíð hans óljós en núverandi samningur þessa hollenska varnarmanns rennur út 30.júní næstkomandi.

Samkvæmt því sem við komumst næst verður honum ekki boðinn samningur og ljóst að hann þarf að leita sér að nýju félagi. Auk þess mun landi hans og miðvallarleikmaðurinn Philip Cocu fara frá félaginu í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.