Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 25. maí 2020 22:29
Brynjar Ingi Erluson
Fyrrum leikmaður Roma fékk hjartaáfall og lést
Joseph Bouasse er hér ásamt Francesco Totti
Joseph Bouasse er hér ásamt Francesco Totti
Mynd: Twitter
Kamerúnski leikmaðurinn Joseph Bouasse lést í dag eftir að hafa fengið hjartaáfall en það er ítalska félagið Roma sem greinir frá þessu á Twitter.

Bouasse, sem var aðeins 21 árs gamall, gekk till liðs við Roma árið 2016 og spilaði með unglinga- og varaliði félagsins auk þess sem hann æfði reglulega með aðalliðinu.

Hann var lánaður til B-deildarfélagsins Vicenzea tímabilið 2017-2018 áður en hann sneri aftur til Roma.

Hann var samningsbundinn rúmenska félaginu U. Cluj sem leikur í B-deildinni en var staddur í Róm er hann fékk hjartáfall og lést.

Sebastian Rüdiger, leikmaður Chelsea, er einn þeirra sem hefur sent kveðju á Twitter.


Athugasemdir
banner
banner
banner