25.06.04 - 21:12
Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Björn í Watford (Staðfest)

Watford er í þessa átt... Mike Riley vísar Brynjari til vegar


Watford er í þessa átt... Mike Riley vísar Brynjari til vegar

Brynjar Björn Gunnarsson er orðinn leikmaður Watford eftir að hafa gengist undir læknisskoðun og skrifað undir samning við félagið í dag. Brynjar mun hefja æfingar með liðinu 1. júlí næstkomandi en með liðinu leikur einnig Heiðar Helguson samherji Brynjars í landsliðinu. Það var einmitt Heiðar sem lagði sitt af mörkunum til að fá Bryjnar til félagsins en Brynjar sagði.
,,Þetta er nýtt tækifæri fyrir mig og ég hlakka til þess og vonandi munum við standa okkur vel á leiktíðinni. Ég hef ekki hitt neinn leikmannana en er mjög spenntur. Auðvitað þekki ég Heiðar. Við höfum verið saman í landsliðinu síðustu fjögur, fimm árin. Ég hitti hann á Íslandi og hann talar mjög fallega um Watford. Hann nýtur þess að vera þar og auðvitað auðveldaði það mér að taka ákvörðun. Ég hlakka til að spila með honum.".
