Fotbolti.net
25.06.26 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jói útherji

Markheppni bakvörðurinn fer til Atletico

Alejandro 'Alex' Grimaldo.

Alejandro 'Alex' Grimaldo.

Canon

Mynd: EPA

Alejandro Grimaldo er á leið til Atletico Madrid ef marka má félagaskiptasérfræðinginn Fabrizio Romano.

Grimaldo er þrítugur vinstri bakvörður sem spilar með Leverkusen. Hann er uppalinn hjá Valencia og Barcelona og hefur á meistaraflokksferli sínum spilað með varaliði Barcelona, Benfica og síðustu þrjú tímabilin verið í Þýskalandi.
Hann á að baki fjórtán A-landsleiki og í 145 leikjum með Leverkusen hefur Grimaldo skorað 30 mörk.

Atletico greiðir ríflega 20 milljónir evra fyrir Grimaldo sem vildi fara til Atletico. Hann er þessa stundina með Spánverjum á HM.

Atletico, sem endaði í fjórða sæti La Liga, ætlar sér líka að fá Kang-in Lee, miðjumann PSG; í sínar raðir.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.