Fotbolti.net
25.07.21 - 10:00
Victor Pálsson
Ítalski boltinn

„Mourinho alveg sama ef við spilum ljótan fótbolta"

„Mourinho alveg sama ef við spilum ljótan fótbolta"
Canon

Mynd: Getty Images

Jose Mourinho er alveg sama þó Roma spili slæman eða góðan fótbolta á komandi tímabili.
Þetta segir Henrikh Mkhitaryan, leikmaður liðsins, sem hefur áður unnið með Mourinho hjá Manchester United.

Margir bíða spenntir eftir Roma á komandi leiktíð en Mourinho hugsar aðeins um stigin þrjú og fátt annað að sögn Mkhitaryan.

„Mourinho er alltaf metnaðarfullur, hann vill alltaf vinna. Honum er alveg sama þó við spilum fallegan eða ljótan fótbolta, þetta snýst um þrjú stig," sagði Mkhitaryan.

„Allir vita að hann hefur unnið nánast allt sem er hægt að vinna."

„Ég vil ekki tala um fortíðina. Við höfum rætt málin og byrjum upp á nýtt. Ég veit hvað hann vill frá sínum leikmönnum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.