Fotbolti.net
25.07.26 - 13:50
Brynjar Ingi Erluson

Hildur Þóra heim í Breiðablik (Staðfest)

Hildur Þóra heim í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Breiðablik

Hertz
Varnarmaðurinn Hildur Þóra Hákonardóttir er komin aftur heim í Breiðablik úr bandaríska háskólaboltanum.
Hildur Þóra er 25 ára gömul og varð bæði Íslands- og bikarmeistari með Breiðabliki áður en hún hélt utan í nám við hinn virta Harvard-háskóla í Bandaríkjunum.

Hún sneri aftur í íslenska boltann á síðasta ári og samdi við FH eftir tæplega tveggja ára hlé frá fótbolta. Hildur hafði fengið höfuðhögg í leik með Blikum sumarið 2023 og ákvað í kjölfarið að stíga til hliðar.

Hildur á að baki 90 meistaraflokksleiki með Breiðabliki og mun nú bæta í þann leikjafjölda. Hún hefur skrifað undir samning við félagið út næsta tímabil.

Þar að auki á hún að baki 25 leiki fyrir yngri landslið Íslands og hefur skorað í þeim þrjú mörk.

Breiðablik er ríkjandi Íslands- og bikarmeistari og í harðri baráttu við FH um Íslandsmeistaratitilinn í ár. Blikar eru í öðru sæti með 27 stig, tveimur stigum á eftir FH.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.