Fotbolti.net
25.07.26 - 11:05
Brynjar Ingi Erluson

Khusanov framlengir við Man City (Staðfest)

Khusanov framlengir við Man City (Staðfest)
Canon

Mynd: Manchester City

Úsbekinn Abdukodir Khusanov hefur framlengt samning sinn við Manchester City til 2031. Þetta staðfestir félagið í tilkynningu í dag.
Hinn 22 ára Khusanov gekk til liðs við Manchester City frá franska félaginu Lens á síðasta ári.

Hann fór á kostum á sínu öðru tímabili hjá félaginu og greip tækifærið þegar Ruben Dias og Josko Gvardiol glímdu við meiðsli.

Khusanov var einn þriggja leikmanna sem voru tilnefndir sem besti leikmaður Manchester City á tímabilinu.

Félagið hefur nú verðlaunað hann fyrir frammistöðuna með nýjum samningi sem gildir til ársins 2031.

Khusanov er annar leikmaðurinn sem framlengir samning sinn við City á skömmum tíma en Phil Foden samdi á dögunum til ársins 2030. Jeremy Doku og Gvardiol eru sagðir næstir í röðinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.