24.07.26 - 23:40
Sölvi Haraldsson
Rekinn tvisvar sinnum í burtu - „Þannig ég missi mig“
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Mér líður virkilega vel, þetta var verðskuldaður sigur. Mér fannst við taka öll völd á leiknum eftir fyrsta korterið. Þetta var svolítið kick and run í dag. Þetta voru erfiðar aðstæður og völlurinn er erfiður en við vorum hugrakkir á boltaum og pressan okkar gekk vel. Í dag gekk leikplanið upp og það var smá hiti í leiknum sem mér finnst oft þurfa svo að Njarðvíkurliðið byrji að tikka.“ sagði Davíð Smári, þjálfari Njarðvíkur, eftir 3-2 sigur á HK í kvöld.
Lestu um leikinn: Njarðvík 3 - 2 HK
Davíð Smári fékk rautt spjald í seinni hálfleik fyrir að vilja fá rautt spjald á varnarmann HK. Hann segir rauða spjaldið sitt hafa kveikt í sínum mönnum.
„Mér finnst ótrúlega leiðinilegt þegar við erum að hvetja leikmenn til að standa og standa af sér brotin og vera ekki fiska eitthvað bull. Mér fannst Valdi gera ótrúlega vel þarna en hann fær engin verðlaun fyrir það að standa af sér þessi brot. Ég held að þetta sé bara rautt spjald og því miður rangur dómur. Þannig missi ég mig og fer út úr boðvangnum, ég held að ég fái rautt spjald fyrir það. Stundum þarf að fórna drottningunni til að vinna skákina sagði einn góður maður og mér fannst þetta kveikja í liðinu. Ekki það að ég ætla að leggja það í vana minn að haga mér eins og fífl.“
Það vakti athygli að eftir að Davíð fékk rautt spjald þurfti Elías að stoppa leikinn og reka hann ennþá lengra í burtu en hann stóð fyrir aftan annað markið sem Njarðvík sótti að í seinni hálfleik (nær bílastæðinu) og var þar að láta í sér heyra.
„Ég var náttúrulega bara að hvetja mína menn, langt fyrir utan völlinn, en honum fannst ég hafa of mikil áhrif á leikinn við að hvetja strákana áfram þannig ég færði mig bara upp í stúku og allt í góðu með það.“
Það sauð allt upp úr eftir leik og bæði Oumar Diouck og Aron Kristófer fengu rautt spjald.
„Ég sá þetta ekki og ég er auðvitað bara með sögur frá mínum mönnum. Ég heyrði að það hafi verið veist að Oumari Diouck og það hefði lent eitthvað þeirra á milli. Við þurfum bara að horfa á þetta á Spiideo, Oumar fær víst rautt spjald en hann lofaði mér því að hann hafi aldrei snert leikmanninn, það er þá bara eitthvað sem við verðum að áfrýja til KSÍ. Þetta er partur af þessu og það er ástríða í þessu. En vonandi gerir KSÍ það rétta og skoðar myndbandsupptökurnar í þessu. Það er víst verið að skoða einhverjar myndbandsupptökur til þess að gefa rauð spjöld eftir á. Það hlýtur þá að vera hægt að gera hið rétta í hina áttina. Annað fyndist mér skrítið í þessu. Við viljum bara fá réttlæti, um það snýst þetta. Ég hagaði mér auðvitað ekki eftir bókinni að verða reiður við að liðið mitt ætti að fá rautt spjald. Það er bara eitthvað sem ég verð að skoða aftur.“ sagði Davíð Smári í viðtali eftir sigurinn á HK.
Viðtalið við Davíð Smára má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.