25.07.26 - 15:59
Brynjar Ingi Erluson
Varnarmaður West Ham ekki til sölu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
West Ham hefur sent skýr skilaboð um að senegalski landsliðsmaðurinn El Hadji Malick Diouf sé ekki til sölu.
Brentford spurðist á dögunum fyrir um El Hadji Malick Diouf hjá West Ham. Samkvæmt heimildum Sky Sports gerðu stjórnarmenn West Ham hins vegar Brentford skýrt að hann væri ekki til sölu.
Vinstri bakvörðurinn er einn af mörgum leikmönnum sem Brentford hefur til skoðunar. Félagið hefur þegar yfir nokkrum bakvörðum að ráða og því er ekki brýn þörf á að styrkja þá stöðu.
Bakvarðakaup eru þar af leiðandi ekki í forgangi hjá Brentford. Rétt er þó að hafa í huga að félagið hefur spurst fyrir um fjölda leikmanna á meðan það kannar möguleika sína á að styrkja mismunandi stöður í sumar.
Diouf er 21 árs gamall og lék stórt hlutverk með Senegal á heimsmeistaramótinu í sumar. Hann kom við sögu í þremur af fjórum leikjum liðsins, þar á meðal í 3-2 tapinu gegn Belgíu eftir framlengingu í 32-liða úrslitum.